Inflúensufaraldurinn heldur áfram þó að dregið hafi úr honum eftir að hámarki var náð í desember. Þá greindust tvær vikur í röð yfir hundrað með inflúensu en síðustu fjórar vikur hafa að meðaltali þrettán greinst með inflúensu í viku hverri. Þetta kemur fram í yfirliti landlæknis um öndunarfærasýkingar. Sautján greindust með RS-veirusýkingu í síðustu viku og lágu sex sjúklingar inni á Landspítala með hana. Læknir að störfum. Safnmynd.RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon