18 milljónir í biðlaun vegna tveggja ráðherra

Ríkissjóður hefur greitt tæpar sautján milljónir króna í biðlaun og launatengd gjöld og á eftir að greiða rúma milljón til viðbótar vegna starfsloka tveggja ráðherra á þessu kjörtímabili. Þetta kemur fram í svari Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Ásthildur Lóa Þórsdóttir varð mennta- og barnamálaráðherra, við ríkisstjórnarskipti en sagði af sér embætti fjórum mánuðum síðar. Þá tók við flokksbróðir hennar úr Flokki fólksins, Guðmundur Ingi Kristinsson, sem hætti vegna veikinda eftir tæpa tíu mánuði. Búið er að greiða 9 milljónir vegna Ásthildar Lóu og greiðslur vegna Guðmundar Inga nema á endanum tæpum níu milljónum króna. Þar af á eftir að greiða tæplega 1,1 milljón króna.