Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað máli hinnar áströlsku Nöru Walker á hendur íslenska ríkinu frá dómi. Nara kærði ríkið í kjölfar þess að hún var sakfelld og dæmd í átján mánaða fangelsi fyrir að bíta hluta úr tungu fyrrverandi eiginmanns síns. Dómstóllinn taldi kæru hennar ekki byggða á nægilega sterkum grunni og því þyrfti að vísa henni frá dóminum.