Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana

Eitt af bestu liðum þýsku 1. deildarinnar í handbolta hefur samið við landsliðskonuna Ölfu Brá Oddsdóttur Hagalín og fagnar því að hafa fengið slíkan toppvarnarmann.