Hart sótt að fjármálaráðherra á Alþingi

Öllum fimm óundirbúnum fyrirspurnum þingmanna til ráðherra í morgun var beint til Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra þótt þrír aðrir ráðherrar væru til svara og þar á meðal utanríkisráðherra. Ástæðan er samt einföld, ákvörðun Seðlabankans frá í gær að hækka stýrivexti, útlitið sé ekki gott og ráðherra var spurður hvort hann hefði ekki áhyggjur af þeirri stöðu sem væri að teiknast upp. Vextir og verðbólga í hæstu hæðum Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins sagði útlitið ekki gott og að aðstæður væru ekki frýnilegar. Hún sagði ríkisstjórnina ekkert ætla að hjálpa Seðlabankanum til þess að ná niður verðbólgunni. Í sama streng tók Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins. „Hvernig ætlar hæstvirtur frjármálaráðherra að bregðast við stöðunni sem upp er komin í efnahagskerfi landsins og ná tökum á vöxtum og verðbólgu,“ sagði Sigmundur Davíð. Stefán Vagn Stefánsson varaformaður Framsóknarflokks var á svipuðum slóðum. „Verðbólga mælist tvo mánuði í röð 5,2 prósent og Seðlabankinn hækkaði í gær stýrivexti í 7,5 prósent meðal annars með vísun í undirliggjandi verðbólgu og atvinnuleysi er í hæstu hæðum,“ sagði Stefán Vagn. Laun hafa hækkað umfram svigrúm Daði Már Kristófersson var til svara og hann sagði að það skipti miklu máli að ríkið sýni aðhald og það sé nákvæmlega það sem ríkið ætli sér að gera í þeirri fármálaáætlun sem verði kynnt í næstu viku, auka verði aðhald í rekstri hins opinbera. „Grundvallarvandamálið er að laun hafa hækkað hér umfram þá innistæðu sem er til launahækkana og þess vegna höfum við lagt ríka áherslu á virkt samtal við aðila vinnumarkaðarins um hvernig við getum sameiginlega fundið leiðir til að minnka þennan þrýsting,“ sagði Daði Már.