Víkingur opinberaði í dag samstarf við netverslunina Boozt um samstarf til fjögurra ára. Boozt prýðir nýja treyju liðsins og er fyrsta erlenda fyrirtækið, sem ekki er með starfsstöð hér á landi, sem styrkir íslenskt félagslið með þeim hætti.