Frá­bært að sleppa við austantjaldið

„Ég held þetta sé sérstaklega ljúft núna að ná heilli viku hérna heima á Íslandi. Það er ógeðslega mikil snilld,“ segir Einar Þorsteinn Ólafsson, landsliðsmaður í handbolta. Íslenska liðið hefur nýtt tímann vel til æfinga í vikunni og mikil spenna er fyrir leik við Svíþjóð í kvöld.