Heimir Hallgrímsson hefur framlengt samning og verður áfram landsliðsþjálfari karlaliðs Írlands í fótbolta. Nýji samningurinn gildir út EM 2028 sem verður í Bretlandi og Írlandi. Sem gestgjafar fá Englendingar, Skotar, Walesverjar og Írar þátttökurétt og því ljóst að Heimir mun stýra Írum á mótinu. Írland á þar að auki enn möguleika á sæti á HM í sumar, til þess þarf liðið að vinna Tékkland 26. mars og annað hvort Danmörku eða Norður-Makedóníu 31. mars. Í yfirlýsingu írska knattspyrnusambandsins segir Heimir: „Ég er virkilega stoltur og ánægður að skuldbinda framtíð mína Írlandi. Ég hef alltaf sagt að við séum á vegferð saman — leikmennirnir, starfsmennirnir og okkar ótrúlega stuðningsfólk. Ég get séð framfaraskrefin okkar og möguleikana sem býr í hópnum svo þetta var auðveld ákvörðun fyrir mig.“