Katar boðar skertan útflutning á gasi í kjölfar árásar

Höfuðstöðvar QatarEnergy orkufyrirtækisins í Doha sem á Ras Laffan gasvinnslustöðina.EPA / HANNIBAL HANSCHKE Katar gæti þurft að rifta langtímasamningum um sölu á gasi, eftir árásir Írana á Ras Laffan gasvinnslustöðina í gær. Saad al-Kaabi, forstjóri orkufyrirtækis Katar, Qatar Energy, sagði þetta í viðtali við Reuters fréttaveituna í dag og bar við því sem kallað er force majeure - óviðráðanlegum ástæðum. Kaabi sagði að árásin hefði skert getu fyrirtækisins til að flytja út gas og viðgerðir á tækjabúnaði gætu tekið þrjú til fimm ár. Í viðtalinu við Reuters sagði Kaabi fyrirtækisins að mögulega þyrfti að rifta samingum um sölu á gasi til Kóreu, Kína, Ítalíu og Belgíu. Orkuverð í Evrópu og víðar hefur snarhækkað eftir árásirnar síðustu daga.