Vaxtahækkun og skilaboð peningastefnunefndar var nauðsynlegt skref til að snúa við óheillaþróun undanfarna mánuði þannig að endingu skapist forsendur fyrir lækkun vaxta, að mati hagfræðings, en hann varar við því að verðbólgan geti farið upp undir sex prósent síðar á árinu ef hækkun olíuverðs gengur ekki til baka. Lítilsháttar lækkun á verðbólguálaginu í gær var skammgóður vermir og hafa verðbólguvæntingar skuldabréfafjárfesta rokið upp á nýjan leik.