Allur þessi jazz og kuldakalypsó í Undiröldunni

Greiningardeildin ásamt Bogomil Font og Emilíönu Torrini – Þú stendur alltaf með mér Þú stendur alltaf með mér er nýtt lag af væntanlegri plötu frá Bogomil Font og Greiningardeildinni. Sérstakur gestur og verndari lagsins er söngkonan Emilíana Torrini sem syngur hér með Bogomil Font. Lagið er laufléttur dúett í stíl við annað kuldakalypsó sem verður á plötunni og er eftir Braga Valdimar Skúlason. Undiraldan fimmtudaginn 19. mars Það er af nógu að taka í nýrri íslenskri tónlist í Undiröldunni á Rás 2 og boðið upp á nýmeti frá Laufeyju, Superserious, Greiningardeildinni ásamt Bogomil Font og Emilíönu Torrini og mörgum öðrum. Superserious – Island full of deadbeats (..OR SOMETHING) Hljómsveitin Superserious hefur sent frá sér lagið Island full of deadbeats eftir Daníel Jón Jónsson söng- og gítarleikara sveitarinnar. Með honum í bandinu eru Sólrún Mjöll Kjartansdóttir trommari, Haukur Jóhannesson gítarleikari og Kristinn Þór Óskarsson bassa, gítar og hljómborð. Creature of Habit – Myrká Myrká er nýtt lag úr smiðju fjöllistahópsins Creature Of Habit sem er skipaður gítarleikaranum knáa úr Skagafirði, Reyni Snæ. Við gerð þessa lags sameinar hann krafta sína með Húnvetningnum Júlíusi Aðalsteini Róbertssyni, eða Júlla, sem semur textann við lagið og er innblásinn af Djáknanum á Myrká. Andervel – Ironclad and Palm trees Lagið Ironclad and Palm trees frá Andervel var samið þegar heilsu ömmu hans hrakaði hægt og rólega í Mexíkó. Lagið fjallar um að ein erfiðasta fórnin sem fylgir því að flytja milli landa sé að byggja upp líf fjarri þeim sem maður elskar. Það var samið og tekið upp í Reykjavík, framleitt af þeim Andervel og Alberti Finnbogasyni, með strengjaútsetningu eftir tónskáldið Snorra Hallgrímson. Arfi – Dark blue night Að sögn hljómsveitarinnar Arfa kanna lög þýsk-íslenska tríósins spennuna milli stafrænnar menningar annars vegar og nærveru og einlægni hins vegar. Tónlist þeirra fangar bæði ringulreið og fegurð rafvædds samtímans, þar sem náttúra og mannlegar tilfinningar lifa hlið við hlið, eins og í laginu Dark blue night. Iris Gold – Tippy toes Tónlistarkonan Iris Gold er frá Danmörku og hefur nýverið sent frá sér lagið Tippy toes sem var samið í lagahöfundabúðum í gamla landinu. Tippy toes er sem sagt norrænt samstarf Silju Rósar Ragnarsdóttur, sem fjallar um það að dansa til að gleyma, og meðhöfunda hennar sem eru Nina Henriksen, Iris Gold og Kajsa Klements. Dan Van Dango – Óþverri Hljómsveitin Dan Van Dango sendi frá sér plötuna Café Royal þann 12. mars og það er fimmta breiðskífan frá árinu 2022. Upphafslag hennar er Óþverri sem er, ásamt textanum, skrifað á Karl Gunnar Jónsson. Undiraldan þriðjudagurinn 17. mars Það er af nógu að taka í nýrri íslenskri tónlist í Undiröldunni á Rás 2 og boðið upp á nýmeti frá Laufeyju, Superserious, Greiningardeildinni ásamt Bogomil Font og Emilíönu Torrini og mörgum öðrum. Laufey – How I Get Tónlistarkonan Laufey heillaði landann um helgina í Kórnum þar sem hún spilaði fyrir þúsundir tónleikagesta. Nýjasta lag hennar kom út um mánaðamótin og heitir How I Get og verður á plötunni A Matter of Time: The Final Hour sem kemur út 10. apríl. Aofie O'Brien – Never been One to let a Bygone go Aoife hefur sent frá sér lagið Never been One to let a Bygone go. Hún er írsk-bresk söngkona og lagahöfundur sem hefur búið í Reykjavík síðastliðin fimm ár. Líkt og Laufey Lín blandar hún saman jazzi og alternative-poppi. Hún stundar meistaranám í LHÍ og ætlar að hefja nám í jazz-söng við Tónlistar- og Dansháskólann í Köln í Þýskalandi síðar á þessu ári. Afkvæmi guðanna, Emmsjé Gauti – Borg Afkvæmi guðanna hafa verið starfandi innan rappgeirans frá 2001 þegar plata þeirra Dæmisögur kom út. Í laginu Borg skrifa þeir óð til bernsku íslenska rappsins í Árbæ og Breiðholti og njóta aðstoðar frá Emmsjé Gauta og B Ruff. SúEllen – Sálmur 1703 Hljómsveitin SúEllen hefur sent frá sér lagið Sálmur 1703 til að heiðra minningu Ingvars Lundberg, hljómborðsleikara sveitarinnar, sem lést 2022. Ingvar hefði orðið 60 ára 17.03. 2026. Lagið er eftir Steinar Gunnarsson sem samdi einnig textann með Guðmundi Rafnkeli Gíslasyni. Það segir frá áföllum, missi og hvað það er mikilvægt að bera þolinmæði í þrautinni og djörfung í dauðanum. Gildran – Good Balance Hljómsveitin Gildran úr Mosfellsbæ hefur sent frá sér lagið Good Balance. Sveitin er skipuð Birgi Haraldssyni söngvara, Karli Tómassyni trommara, Pálma Sigurhjartarsyni píanóleikara, Sigurgeiri Sigmundssyni gítarleikara og Þórhalli Árnasyni bassaleikara. Grasasnarnir – Hvikum hvergi Hvikum hvergi samdi Steinar Berg fyrir hljómsveit sína, Grasasnana. Það hefur að geyma textalega tilvísun til uppáhaldshjómsveitar kynslóðar hans auk þess sem hann fullyrðir að George Harrison spili á slide-gítar í gegnum Sigurgeir Sigmundsson. Önnur sem mönnuðu Grasasnana í þetta skiptið eru Jóhann Ásmundsson, Ásmundur Jóhannsson, Sigurgeir Sigmundsson, Óskar Einarsson og Alma Rut Kristjánsdóttir. Undiraldan lagalisti