Ketamínneysla íbúa í 115 evrópskum borgum og bæjum jóks um 41 prósent milli áranna 2024 og 2025. Kókaínneysla jókst um 22 prósent á sama tíma. Þetta er meðal niðurstaðna í stærstu samevrópsku rannsókninni sem gerð hefur verið á skólpvatni . Rannsóknin tekur meðal annars til fíkniefna í skólpvatni í Reykjavík. Hér hefur kókaínneysla aukist, og raunar stóraukist frá því mælingar hófust fyrir tíu árum. Kannabisneysla í Reykajvík virðist hins vegar hafa dregist saman. Í samantekt á niðurstöðum rannsóknarinnar segir að kókaínneysla sé einna mest í vestur- og suðurhluta Evrópu, sérstaklega í Belgíu, Hollandi og á Spáni. Kókaínneysla er talsvert minni í austurhluta Evrópu, en heldur þó áfram að aukast millli ára. Neysla á kannabis stóð nokkurn veginn í stað milli 2024 og 2025 og var mest í Hollandi, Þýskalandi og Slóveníu. Neysla á MDMA dróst saman um 16 prósent í Evrópu milli ára. Neysla amfetamíns og metamfetamíns var mjög misjöfn milli landa en stóð almennt í stað. Neysla amfetamíns er mest í Norður- og Mið-Evrópu, sérstaklega Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Belgíu, Hollandi og Þýskalandi. Kókaínneysla stóraukist í Reykjavík en dregið hefur úr kannabisneyslu Meðal borga sem þar sem skólpvatn var rannsakað er Reykjavík. Þar jókst magn bensóýlekgóníns, umbrotsefnisins sem myndast við neyslu kókaíns, úr 367,5 milligrömmum að meðaltali á dag á hverja 1000 íbúa árið 2024 í rúm 477 milligrömm árið 2025. Þegar magn kókaíns í skólpvatni í Reykjavík var fyrst mælt árið 2015 var það að meðaltali tæplega 58 milligrömm á hverja 1000 íbúa á dag. Ketamínneysla jókst líka á milli ára í Reykjavík. 2024 var fysta árið sem ketamín var mælt í skólpi hér, þá mældust 16,4 milligrömmum að meðaltali á dag á hverja 1000 íbúa en magnið jókst í rúm 30 milligrömm í fyrra. Magn THC-COOH, umbrotsefnisins sem myndast við neyslu kannabiss, í skólpvatni í Reykjavík dróst saman milli áranna 2024 og 2025 úr 55 milligrömmum á hverja 1000 íbúa á dag í 35. Þegar magn THC-COOH í skólpi í Reykjavík var fyrst mælt 2018 var það 97 milligröm að meðaltali á hverja 1000 íbúa á da og mældist mest 2022 eða tæplega 122 milligrömm.