Út­skrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara

Forsvarsmenn sjúkrahúss í Flórída hafa höfðað mál gegn konu sem hefur alfarið neitað að yfirgefa sjúkrahúsið í þá fimm mánuði síðan hún var útskrifuð. Dómari hefur verið beðinn um að veita starfsmönnum sjúkrahússins leyfi til að flytja konuna á brott og það með aðstoð lögreglunnar, reynist það nauðsynlegt.