Fjölmiðlamaðurinn móðgaðist út í karlmennsku-áhrifavald og strunsaði út úr sínu eigin viðtali – „Ég tek ekki þátt í þessu“

Það gerist stundum að fjölmiðlamenn gangi hart að viðmælendum sínum, svo hart að viðmælendur hreinlega rjúka á dyr. Það gerist þó ekki á hverjum degi að sjálfur fjölmiðlamaðurinn strunsi út úr eigin viðtali. Það gerði breski sjónvarpsmaðurinn Piers Morgan á dögunum þegar hann taldi viðmælanda sinn, áhrifavald sem er þekktur sem HSTikkyTokky, ganga of langt. Lesa meira