Guðrún Brá í góðri stöðu fyrir lokahring í Suður-Afríku

Kylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir er meðal efstu kylfinga á Platinum Ladies Open mótinu í Suður-Afríku. Guðrún átti í í dag einn sinn besta hring er hún fór á 66 höggum. Hún er því meðal efstu kylfinga fyrir lokahringinn sem verður á morgun. Andrea Bergsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir eru einnig meðal keppenda á mótinu. Guðrún er að keppa á sínu fjórða móti á Sunshine mótaröðinni í ár, sem fer fram í suður- og austur Afríku. Hún varð í 3. sæti á fyrsta mótinu og hefur nú færi á að enda meðal efstu kylfinga aftur. Guðrún fór fyrsta hring á 69 höggum og þann annan á 66 höggum. Hún er nú á -9 undir pari en Madelene Stavnar frá Noregi leiðir á -12 undir pari. Staðan á mótinu Madelene Stavnar - Noregur - 12 undir pari Lorna McClymont - Skotland - 11 undir pari Þrjár jafnar á 10 undir pari Guðrún er í 6. sæti jöfn með sex öðrum kylfingum. Hulda og Andrea eru sem stendur ekki að fara að ná niðurskurði. Andrea er í 80. sæti og er þremur höggum yfir pari á 10. holu en lék fyrsta hringinn á 72 höggum. Hulda er í 69. sæti og er tveimur höggum yfir pari á 9. holu en lék fyrsta hringinn á 71 höggi. Þriðji lengsti völlur í heimi Blair Atholl völlurinn er sá þriðji lengsti í heimi og er yfir 7.500 metrar. Platinum Ladies Open mótið er hluti af Sunshine Ladies Tour sem er aðalmótaröð Afríku.