Kærum áströlsku listakonunnar Nöru Walker gegn íslenska ríkinu hefur verið vísað frá. Walker kærði ríkið til Mannréttindadómstóls Evrópu eftir að hafa verið dæmd í fangelsi hér á landi fyrir að bíta hluta úr tungu eiginmanns síns sem hún sagði hafa beitt sig ofbeldi. Walker var dæmd í átján mánaða fangelsi fyrir að að bíta hluta út tungu eiginmanns síns og ofbeldi gegn konu sem var gestkomandi á heimili þeirra. Hún var sakfelld fyrir tvær líkamsárásir og brot í nánu sambandi. Walker hefur haldið því fram að hún hefði brugðist við í sjálfsvarnarskyni. Eiginmaður hennar hefði beitt hana ofbeldi árum saman og hún haft ríka ástæðu til að telja að hún væri í hættu. Walker sagði lögreglu ekki hafa tekið nægt tillit til þeirra þátta sem bentu til þess að hún hefði brugðist við í sjálfsvörn við rannsókn málsins. Þá hefðu fyrri kærur hennar um heimilisofbeldi heldur ekki verið rannsakaðar nægilega vel. Of langt hefði liðið frá kæru fram að yfirheyrslu yfir manninum og skýrslutökum af vitnum og mikilvæg sönnunargögn ekki verið tekin til greina. Kæran ekki byggð á nógu sterkum grunni Íslenska ríkið hélt því fram að rannsóknin hefði verið fullnægjandi og fullyrðingar Walkers um sjálfsvörn hefðu verið fyllilega kannaðar. Dómstóll hefði hins vegar hafnað þeim því viðbrögð hennar voru ekki talin nauðsynleg til að verjast árás. Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði kærunum frá á þeim grundvelli að þær væru ekki byggðar á nógu sterkum grunni. Íslensk yfirvöld hefðu rannsakað málið og tekið rökstuddar ákvarðanir. Það að kærandi væri ósammála mati á sönnunargögnum fæli ekki í sér, eitt og sér, að ekki hafi verið staðið rétt að meðferð málsins.