Landsmenn sjá gull í almyrkvanum sem líkja má við loðnu

Íslendingar sjá margir gull í almyrkvanum í sumar og freista þess að leigja út hús sín og íbúðir á uppsprengdu verði. Seðlabankastjóri fagnar uppgripum fyrir hönd ferðaþjónustunnar og líkir þessu við loðnu. Ákveðnar viðvörunarbjöllur hljóma í eyrum annarra sem spyrja; er Ísland nægilega undirbúið? Fjörutíu skemmtiferðarskip sem verða á almyrkvaslóðinni Von er þúsundum erlendra ferðamanna hingað til lands um miðjan ágúst til að berja almyrkvann augum. Nánar tiltekið 12. ágúst. Fram kom í fréttum nýverið að fjögur lögregluembætti ynnu saman að viðbragðinu auk ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðuneytisins, og að störfum er samráðshópur á vegum almannavarna sem metur hversu margt fólk verður á ferðinni. Það gefur kannski ágætis mynd af stöðunni að nærri fjörutíu skemmtiferðaskip hafa tilkynnt að þau ætli að vera á almyrkvaslóðinni en þau leggjast ekki öll hér að bryggju; sum sigla til Grænlands. Þetta eru slík uppgrip að Seðlabankinn fylgist með. „Þetta er að vísu tiltölulega stuttur tími sem þetta stendur yfir en ég held að þetta muni leiða til þess að sumarið verði betra en ella,“ segir Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri. Á sama tíma finni ferðaþjónustan fyrir kostnaðarhækkunum, Ísland sé orðið dýrt land og eldsneytisverð geti haft áhrif á fargjöld. „En þetta er jákvætt fyrir greinina, bara eins og loðnan, sem við bjuggum ekki endilega við en er að koma, alveg eins og almyrkvinn og í sjálfu sér getum við glaðst yfir því.“ Íbúar Snæfellsbæjar leigja út húsin fyrir hundruð þúsunda Mesta athyglin er á Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem á almyrkvinn á að sjást hvað best - þar er enga hótelgistingu að fá þessa daga í ágúst, hún er fyrir löngu uppbókuð. Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, segist í samtali við Spegilinn ekki hafa heyrt af því að íbúar séu byrjaðir að skoða útleigu á sínum íbúðum því eftirspurnin sé svolítið óljós og í sama streng tekur Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Öll gisting sé uppbókuð og það fyrir nokkru síðan. Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, hafði heyrt að einhverjir bæjarbúar hefðu fyrir löngu leigt út sín hús til erlendra ferðamanna; verðið sem nefnt var í hans eyru væri í kringum 900 þúsund fyrir fimm daga gistingu. Snæfellsbær hóf að undirbúa sig fyrir nokkru síðan; Kristinn viðurkennir engu að síður að honum finnist þetta vera að raungerast með ýktari hætti en hann átti von á. Ágúst er háannatími í ferðaþjónustunni og því ekki óeðlilegt að bílaleigubílar séu uppbókaðir - en það er nokkuð síðan að allir húsbílar HappyCamper, rúmlega 250 talsins, voru bókaðir á þessum tíma. Sama má segja um húsbíla hjá Höldi. Milljónir fyrir íbúð í höfuðborginni Höfuðborgarbúar hugsa sér augljóslega líka gott til glóðarinnar - Speglinum hafa borist allmargar ábendingar um fólk sem leigt hefur út íbúðir sínar dýrum dómi. Spegillinn leitaði að íbúð í viku fyrir tvo fullorðna; annars vegar um miðjan júlí og svo vikuna í kringum almyrkvann, bæði á Booking og Airbnb. Í júlí var lítið mál að finna íbúð á viðráðanlegu veðri, dagana í kringum almyrkvann var vart að finna íbúð sem kostaði minna en milljón. Íbúð á Airbnb dagana í kringum almyrkvann var jafnvel tvö til þrefalt dýrari í ágúst en júlí. Áfram eru ákveðnir óvissuþættir sem erfitt getur verið að bregðast við; íslenskt veður er ófyrirsjáanlegt og nokkrar erlendar ferðaskrifstofur eru með ákveðna fyrirvara í sínum bókunum; þær geta afbókað gistingu ef hér verður rigning og rok og farið með sína almyrkva-túrista annað. Svikahrappar stukku á almyrkvann En þar sem er eftirspurn - þar eru svikahrappar. Þessu fengu staðarhaldarar hjá Hótel Breiðavík að kynnast. Fyrir nokkru fór fólk að hafa samband við Birnu Atladóttur, hótelstjóra, sem hafði pantað sér hótelgistingu í tengslum við almyrkvann og vildi fá að gera ákveðnar breytingar. Það gat framvísað trúverðugri kvittun um kaupin en vandinn var sá að pöntunin hafði verið gerð í gegnum tvær síður sem svikahrappar höfðu sett upp. Þær voru nánast spegilmynd af vefsíðu hótelsins og skörtuðu myndum sem búnar höfðu verið til með gervigreind. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglunni á Vestfjörðum. Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum, staðfestir þetta en segir ekki vitað hversu margir hafi orðið fyrir barðinu á þessum svikum. Ekki sé óalgengt í kringum stóra viðburði, eins og tónleika, að settar séu upp svona síður til að hafa fé af fólki. Óvíst sé hvort þarna hafi innlendir eða erlendir brotamenn verið að verki. Þeir sem Spegillinn ræddi við í dag höfðu líka ákveðnar áhyggjur af að yfirvöld hefðu ekki brugðist nægilega fljótt við og væru ekki viðbúin; einn orðaði það þannig að þetta gæti auðveldlega snúist upp í höndunum á okkur.