Bandarískur ríkisborgari virðist hafa tekið stjórn á öflugustu glæpasamtökum Mexíkó. Juan Carlos Valencia González mun hafa tekið fljótt við stjórn Jalisco New Generation Cartel, eða JNGC, stundum CJNG, eftir að sjúpfaðir hans Nemesio Oseguera Cervanter, eða „El Mencho“, var felldur af hermönnum í Mexíkó í síðasta mánuði.