Rússneski stríðsbloggarinn Ilya Remeslo var lagður inn á geðdeild á spítala í Pétursborg í gærkvöld. Rússneski miðillinn Bumaga greinir frá þessu á Telegram . Remeslo var áður stuðningsmaður Pútíns og studdi allsherjarinnrás Rússlandshers í Úkraínu en á þriðjudagskvöld birti hann færslu á Telegram þar sem hann gagnrýndi forsetann harðlega. Færslan ber yfirskriftina Fimm ástæður þess að ég hætti að styðja Vladimír Pútín. Í henni sakar Remeslo Pútín um að hafa eyðilagt efnahag Rússlands, rýrt lífskjör almennings, hert tökin á fjölmiðlum og netinu, leyft spillingu að grassera og að senda hermenn út í opinn dauðann á víglínunni í Úkraínu. Í ljósi þessa hefur innlögn Remeslo á geðdeild vakið grunnsemdir. Taugaáfall eða mannrán? Skyndileg stefnubreyting Remeslo hefur hingað til ekki hlotið meðbyr í hópum hliðhollum stjórnvöldum í Rússlandi. Apti Alaudinov, yfirmaður sérsveita leiðtoga Tétsníu, stakk upphaflega upp á því að brotist hefði verið inn á aðgang Remeslo eða að hann væri í gíslingu hersveita sem hliðhollar væru Úkraínu. Síðar veltu bæði aðilar hliðhollir stjórnvöldum og stjórnarandstæðingar í útlegð upp kenningu um að Remeslo væri að fá taugaáfall. Stjórnvöld í Rússlandi eru þekkt fyrir að refsa Rússum harkalega fyrir alla gagnrýni á Pútín og stríðið í Úkraínu. Í gær lést 56 ára pólitískur fangi í gæsluvarðhaldi í Rússlandi. Hann var í haldi fyrir að kalla innrásina í Úkraínu „skammarlegt stríð skammarlegs forseta“.