Deildarmeistararnir lágu flatir og Þór heldu sér á floti

Þór og Njarðvík mættust í Þorlákshöfn í dag þar sem mikið var í húfi fyrir bæði lið. Þór berst nú fyrir því að halda sæti sínu í deildinni því liðið sat í ellefta sæti deildarinnar með 10 stig, sama stigafjölda og Ármann sem var sæti ofar. Með sigri hefði Njarðvík getað fest sig betur inni í úrslitakeppninni. Liðið er sem stendur í áttunda sæti. Þórsarar reru lífróður í botnbaráttunni en unnu Njarðvíkinga öruggt. Þór vann með 37 stigum, 109-72. Sigurinn var dýrmætur fyrir Þórsara því á sama tíma tóku Ármenningar á móti deildarmeisturum Grindavíkur og þar gerðu heimamenn vel. Ármann leiddi allan leikinn og vann loks öruggan 18 stiga sigur, 103-87. Þór og Ármann eru því enn jöfn stiga í tíunda og ellefta sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina sem verður leikin 26. mars. Þá var spenna í viðureign Vals og Keflavíkur þar sem liðin skiptust á forystunni. Þar gat Valur tryggt sér fjórða sætið í deildinni og þar með heimavallarrétt í úrslitakeppninni með sigri. Það var mjótt á munum og Valsarar höfðu loks betur, 85-88. Loks var það Reykjavíkurslagur KR og ÍR í Skógarseli. Forystan sveiflaðist á milli liðanna en Breiðhyltingar reyndust seigari og unnu með þremur stigum, 102-99. Hér má sjá stöðuna í deildinni.