United og Liverpool á eftir manni sem er nýkominn til Englands

Manchester United og Liverpool fylgjast grannt með uppgangi kantmannsins Rayan hjá Bournemouth. Þessi 19 ára gamli leikmaður hefur slegið í gegn eftir að hann kom frá Vasco da Gama í janúarglugganum og hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í ensku úrvalsdeildinni. Rayan var fenginn sem arftaki Antoine Semenyo og hefur farið fram úr væntingum. Lesa meira