Sjónvarpsstöðin ABC hefur ákveðið að hætta framleiðslu á nýjustu þáttaröð The Bachelorette eftir að myndskeið af raunveruleikastjörnunni Taylor Frankie Paul, ætlaðri piparjónku seríunnar, að beita fyrrverandi kærasta sinn heimilisofbeldi, fór í dreifingu. Frumsýna átti þáttaröðina eftir þrjá daga.