FSu sigraði FVA eftir spennandi viðureign - þessir skólar mætast í undanúrslitum

Fjölbrautaskóli Suðurlands sigraði Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í seinustu viðureign átta liða úrslita Gettu betur í kvöld, þar með hefur FSu tryggt sér sæti í undanúrslitum keppninnar sem hefjast eftir viku. Bæði lið kvöldsins voru klædd í gulan lit, FVA í ÍA-treyjunum góðu og FSu í gulum sérhönnuðum treyjum. Áhorfendur í sal voru einnig klæddir gula litnum góða. Eftir viðureign kvöldsins liggur fyrir hvaða lið mætast í fjögurra liða úrslitakeppninni sem hefst í næstu viku. Úrslit keppninnar fara fram þann 11. apríl í Háskólabíói.