„Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“
Eldfjallafræðingur segir að eldgosahrinan á Reykjanesskaga sé líklega farin að lognast út af eftir fimm ára umbrotatímabil. Mögulega sé nú komið að kaflaskilum og hann segir að áratugir gætu verið í næsta gos.