Leiðtogar ESB ætla að beita sér gegn „stjórnlausum fólksflutningum“

Ursula von der Leyen, forseti Evrópusambandsins, á leiðtogafundinum í dag.EPA / Olivier Matthys Leiðtogar Evrópusambandsins heita því að „beita öllum tiltækum ráðum“ til að koma í veg fyrir „stjórnlausa fólksflutninga“ til 27 ríkja sambandsins. Stríðið í Íran vekur upp áhyggjur af því að flóttamannavandinn árið 2015 endurtaki sig. „Til að forðast svipaðar aðstæður er ESB reiðubúið að beita öllum sínum diplómatísku, lagalegu, rekstrarlegu og fjárhagslegu úrræðum til að koma í veg fyrir stjórnlausan straum farandfólks til ESB og viðhalda öryggi í Evrópu,“ sögðu leiðtogarnir eftir viðræður um Miðausturlönd á leiðtogafundi í Brussel í dag, samkvæmt því sem fram kemur í frétt AFP.