Framboðslisti Framsóknar og annarra framfarasinna fyrir sveitarstjórnarkosningar í Húnabyggð var samþykktur á félagsfundi á Blönduósi í kvöld. Grímur Rúnar Lárusson leiðir listann. „Ég er afar stoltur af frábæra fólkinu á listanum okkar; þetta er hópur sem sameinar reynslu, metnað og einlægan vilja til að vinna fyrir allt samfélagið. Traustið sem frambjóðendur sýna mér skiptir mig miklu máli, og það er heiður að fá að leiða svona öflugt og samstillt lið. Ég hlakka til að takast á við verkefnin fram undan með þessum hópi sem er tilbúinn að leggja sig fram af heilindum og ábyrgð,” segir Grímur Rúnar í tilkynningu.