Tvennt var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar til aðhlynningar á Landspítalann í Fossvogi eftir að tveir bílar skullu saman á Eyrarbakkavegi við Hraun í Ölfusi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til vegna umferðarslyss í Ölfusi.RÚV / Bragi Valgeirsson Einn var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi segir ekki talið að fólkið hafi slasast mikið. Tilkynning barst um klukkan tíu í kvöld. Verið var að snúa öðrum bílnum við á veginum þegar áreksturinn varð, að sögn varðstjórans. Hávaðarok er á Suðurlandi og gekk á með éljum.