Almannavarnir Hamas á Gaza segja Ísraelsher hafa drepið fjóra Palestínumenn í tveimur aðskildum árásum í Gazaborg. Tjaldbúðir Palestínumanna á vergangi á strandlengjunni við Gazaborg.EPA / MOHAMMED SABER Ísraelsher segir í yfirlýsingu að mennirnir væru þekktir hryðjuverkamenn og því hefði verið ráðist til atlögu gegn þeim. Frá því að Hamas-hreyfingin og Ísraelsríki undirrituðu vopnahléssamkomulag í október hefur Ísraelsher drepið yfir 650 Palestínumenn, helmingurinn er konur og börn samkvæmt upplýsingum heilbrigðisyfirvalda á Gaza.