Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti kveðst búast við framhaldi þríhliða viðræðna í Bandaríkjunum á laugardag um frið eða vopnahlé í innrásarstríði Rússa. Bandarísk stjórnvöld hefðu gefið skýr merki um að vilja halda áfram að vinna innan ramma þeirra samningsdraga sem fram hefðu verið lögð. Zelensky sagði í daglegu ávarpi sínu hluta sendinefndar Úkraínu þegar á leiðinni til Bandaríkjanna. Tímabært væri að binda enda á það hlé sem hefur orðið á viðræðum vegna þátttöku Bandaríkjanna í stríðinu gegn Íran. Zelensky hét því að gera það sem í hans valdi stæði til að viðræðurnar skiluðu árangri og að forgangsatriði væri að skapa aðstæður fyrir sanngjarnan frið, eins hann orðaði það. Úkraínuforseti boðaði jafnframt tíðindi af öryggissamningum við Persaflóaríki eftir heimsókn aðalsamningamannsins Rustems Umerov þangað.