Nýr samningur sagður marka nýja gullöld í samskiptum Bandaríkjanna og Japans

Leiðtogar Bandaríkjanna og Japans tilkynntu í gær umfangsmikla japanska fjárfestingu í orkuinnviðum og iðnaði Bandaríkjanna. Bandaríkin og Japan hafa komist að samkomulagi um byggingu kjarnaofna í Tennessee og Alabama að verðmæti um 40 milljarða dala auk jarðgasorkustöðva í Pennsylvaníu og Texas. Þetta var tilkynnt eftir fund Donalds Trump og Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, í gær. Stöðvarnar komi jafnvægi á orkuverð til Bandaríkjamanna og styrki forystu ríkjanna beggja á tæknisviðinu. Samkvæmt ákvæðum viðskiptasamnings ríkjanna frá í fyrra munu Japanir leggja 550 milljarða dala til margvíslegrar fjárfestingar í Bandaríkjunum til ársins 2029. Á móti voru boðaðir tollar á innflutningsvörur þaðan lækkaðir. Fyrstu innviðaverkefnin voru kynnt í febrúar, þar sem Japan leggur fram um 36 milljarða dala. Einnig var birt áætlun um þróun birgðakeðju fyrir mikilvæg jarðefni og jarðefnavinnslu, meðal annars af sjávarbotni við Japan. Kína hefur borið höfuð og herðar yfir önnur lönd í viðskiptum með jarðefni. Í sameiginlegri yfirlýsingu segir að verkefnin öll muni tryggja öryggi og efnahagsvöxt beggja ríkja og að þau marki leiðina að nýrri gullöld í ævarandi vináttu þeirra.