Starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi tekur til starfa

Starfshópi um nýtt húsnæðislánakerfi, skipuðum af félags- og húsnæðismálaráðherra, er ætlað að greina hvort gera þurfi breytingar á löggjöf um fasteignalán, til að tryggja neytendavernd. Fyrsti fundur hópsins var haldinn í gær og formaður hans Marinó G. Njálsson segir í færslu á Facebook mikla áskorun að skilgreina nýtt kerfi eða lagfæra það sem fyrir er þannig að lántakar og -veitendur verði sáttir. Ráðherrann Ragnar Þór Ingólfsson segir á vef Stjórnarráðsins breytingar á lánamarkaði í kjölfar vaxtadómanna svokölluðu hafa undirstrikað nauðsyn þess að greina hvort koma megi á sanngjarnara, sveigjanlegra og gagnsærra húsnæðislánakerfi hérlendis. Rýnt verði í kosti og galla húsnæðislánakerfa nágrannaríkjanna til hliðsjónar. Brýnt sé að tryggja að staða lántaka sé ekki lakari en áður en dómarnir féllu. Marinó segir að stöðumatinu verði lokið í júní og að tillagna að nýju eða breyttu kerfi megi vænta í seinasta lagi að ári.