Heimir Hallgrímsson hefur framlengt samning og verður áfram landsliðsþjálfari karlaliðs Írlands í fótbolta. Nýi samningurinn gildir út EM 2028 sem verður í Bretlandi og Írlandi. Heimir ræddi framlenginguna við RÚV. Heimir segir að mikil vinna hafi farið í að stýra írsku skútunni á rétta braut. Mikil óreiða hafi verið á liðinu og að mesta skítavinnan sé að baki. Því sé rétt að halda áfram með vegferðina. „Þetta er mjög jákvætt á margan hátt. Í fyrsta lagi er þetta auðvitað að finna að það var eftirspurn eftir því að halda mér hérna áfram. Það er búið að vera pressa frá þeim að skrifa undir. Við höfum alltaf sagt að við ætluðum að fara í það mál þegar keppninni væri lokið,“ sagði Heimir. „En þeir settu mikla áherslu á það og pressu á mig að skrifa undir fyrir þessa umspilsleiki. Það í stóra samhenginu er gott fyrir leikmenn að vita að það verður samfella í því sem við erum að gera.“ „Að því leytinu til var þetta bara hið besta mál. Ég er bara ánægður að vera hérna. Auðvitað er búið að vera mikil vinna sem við erum búnir að skila af okkur. Það væri kannski ekkert skynsamlegt að hoppa frá þessu þegar við erum búnir að vinna kannski mestu skítavinnuna.“ Viðtalið við Heimi má sjá hér. Heimir Hallgrímsson þjálfari írska karlalandsliðsins í fótbolta hlakkar til framhaldsins. Hann verður þjálfari liðsins á EM 2028 á heimavelli. Hann segir Íra hafa ólma viljað skrifa undir áður en umspilsleikir um HM 2026 færu fram. EM fram undan Írland mun halda Evrópumótið í fótbolta ásamt Englendingum, Skotum og Walesverjum. Írar treysta Eyjamanninum bro „Við erum búnir að koma stöðugleika á allt, bæði á umgjörðina og innan sambandsins. Svo er hópurinn búinn að bæta sig úti á velli sem skiptir auðvitað öllu máli.“ „Ég hlakka til að halda áfram. Það er auðvitað risaverkefni fram undan. Við erum ein af þeim þjóðum sem halda þetta Evrópumót þannig að það verða mjög miklar líkur á að við verðum ein af þeim þjóðum sem spila þar. Þannig að það eru margir hlutir að hlakka til í framtíðinni.“ Óreiða í kringum Írland Heimir var spurður að því hvort að árangur hans og liðsins í umspilinu um sæti á HM skipti í raun engu máli. Framlengingin gildir sama hvernig fer. Heimir segir að gleðin sé aftur við völd hjá Írum eftir óreiðutíma. „Þetta er það sem þeir vildu og hvað þeir eru ánægðir með. Það sem þeir sjá, ekki bara í umgjörðinni heldur líka inni á vellinum. Þeir vilja halda áfram á þessari braut.“ „Það hefur verið á allra vitorði að það hefur verið alls konar óreiða í gangi í kringum þetta írska samband og írska landsliðið. Það hefur verið lítill árangur. Það er komin gleði og stemning í kringum landsliðið. Þannig að það eru bara allir ánægðir hérna.“ Næsti hluti viðtalsins verður birtur í aðdraganda umspilsleiksins gegn Tékklandi 26. mars. Þar ræðir hann gífurlegt umfang verkefnisins, gagnrýnina sem hann hefur fengið, stemninguna á Írlandi og HM 2026.