Orbán stendur í vegi fyrir lán­veitingunni til Úkraínu

Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur vakið mikla reiði meðal Evrópuleiðtoga eftir að hann gekk á bak orða sinna. Orbán hafði í desember sagst myndu samþykkja 90 milljarða evra lán til Úkraínu svo lengi sem Ungverjar yrðu ekki meðal lánveitenda en hefur nú dregið það til baka.