HM í dag: Aníta er mætt aftur en nú í annarri grein

Heimsmeistaramótið í frjálsíþróttum innanhúss fer fram í Póllandi nú um helgina. Þrír íslenskir keppendur munu stíga á stokk. Aníta Hinriksdóttir ríður á vaðið í dag en þó í annarri grein en hún er vön. Aníta er þaulreynd í 800 m hlaupi og hefur unnið til verðlauna á stórmótum í þeirri vegalend. Það eru nokkur ár liðin frá því að Aníta keppti á stórmóti því það gerði hún síðast á HM innanhúss árið 2018. Nú mætir hún hins vegar til leiks í 1500 m hlaupi. Aníta hljóp 1500 metra á Meistaramóti Íslands innanhúss og á móti í Svíþjóð nú í febrúar. Í Svíþjóð hljóp hún á 4:17,28 og tíminn hennar á MÍ var 4:28,29. Ræst verður í undanrásum 1500 metra hlaups klukkan 17:22. Keppnin verður sýnd í beinni á RÚV 2. Hér má sjá alla keppnistíma íslensku keppendanna ásamt greinargóðum upplýsingum um dagskrá mótsins. Þá verður hástökk kvenna á dagskrá klukkan 09:00 í beinni á RÚV. Ásamt Anítu eru þær Christina Alba Marcus Hafliðadóttir og Júlía Kristín Jóhannsdóttir mættar til Póllands. Christina Alba keppir í 60 metra hlaupi á laugardag og Júlía Kristín í 60 metra grindahlaupi á sunnudag.