Gular veðurviðvaranir eru nú í gildi um allt vestanvert landið og einu svæðin sem eru undanskilin eru Norðurland eystra, Austurland og Austfirðir. Á höfuðborgarsvæðinu verður viðvörun í gangi í allan dag og fram á morgundaginn en spáð er suðvestan hvassviðri og dimmum éljum. Annars staðar er einnig spáð hvassviðri eða jafnvel stormi og er varasamt að vera á ferðinni.