Norska krónprinsessan Mette-Marit segist í nýju viðtali við NRK hafa látið stjórnast af kynferðisbrotamanninum Jeffrey Epstein sem hafi blekkt hana og jafnvel hrætt. „Auðvitað óskaði ég þess að ég hefði aldrei hitt hann,“ segir krónprinsessan. Hún kveðst taka ábyrgð á því að hafa ekki kannað bakgrunn Epsteins betur og líka fyrir að leyfa honum að svíkja sig og pretta. Hins vegar sé mikilvægt að skýra að hún beri ekki ábyrgð á athæfi Epsteins og ítrekar hversu leitt henni finnst að fórnarlömb hans hafi ekki enn fengið réttlætinu fullnægt. Mikið hefur mætt á Mette-Marit undanfarið, sonur hennar er fyrir rétti ákærður fyrir kynferðisbrot og heilsa hennar sjálfrar hefur verið bágborin. Í viðtalinu segir hún að álagið hafi aukist mikið eftir að á daginn kom að hún átti í töluverðum og nánum samskiptum við Jeffrey Epstein, jafnvel eftir að hún sagðist hafa slitið þeim. Hirðin bað um að viðtalið yrði ekki nema 20 mínútur vegna líðanar Mette-Marit. Mette-Marit ítrekar að hún hafi ekki vitað af brotum Epstein Bandaríska dómsmálaráðuneytið birti þriðja skammt Epstein-skjalanna í janúar og innan um tugþúsundir mynda og milljóna annarra skjala mátti meðal annars finna samskipti Epsteins og Mette-Marit, sem voru töluvert meiri og yfir lengra tímabil en áður var talið. Mette-Marit eyddi meðal annars fjórum dögum á setri Epsteins í Palm Beach á Flórída. Epstein játaði fyrir dómi árið 2008 að hafa neytt tvær konur til vændissölu og var önnur þeirra undir lögaldri. Samkvæmt upplýsingum norsku hirðarinnar sleit Mette-Marit öllum tengslum við Epstein árið 2014. Mette-Marit hefur oftsinnis frá árinu 2019 beðist afsökunar á sambandinu við hann, seinast snemma í febrúar. Mette-Marit var í forsvari fyrir alþjóðleg samtök sem liðsinntu berskjölduðum stúlkum og konum í fátækari löndum heims þegar hún kynntist Epstein, gegnum ónafngreindan sameiginlegan vin. Hún segir þeim strax hafa orðið vel til vina og staðhæfir að hún hafi ekki vitað af kynferðisbrotum þrátt fyrir að það væri á flestra vitorði. Árið 2011 sagði Mette-Marit í tölvupósti til Epsteins að hún hefði leitað hann uppi á Internetinu, gúglað hann: „Sammála. Lítur ekki svo vel út :) “ Krónprinsessan segir Epstein hafa einu sinni látið henni líða illa með framkomu sinni og þá hafi hún ákveðið að láta gott heita, án þess að útskýra það frekar.