Fermingar­börn virðast helst langa í raf­tæki og peninga

Þegar líður að fermingum er árviss viðburður að ELKO geri könnun meðal viðskiptavina og á vef sínum þar sem spurt er út margar hliðar fermingarhaldsins og hvaða gjafir standi hjarta fólki næst. Nýbirtar niðurstöður síðustu könnunar byggja á svörum tæplega tvö þúsund þátttakenda og varpa ljósi á minnisstæðustu gjafirnar, fermingahefðir og hvað má búast við að tróni efst á óskalistum fermingarbarna í ár.