Golfáhugamenn sem vilja lengja golfsumarið sitt þurfa ekki lengur að láta veðrið á norðurslóðum stoppa sig. Á sólríkum ströndum suðausturhluta Spánar býður íslenski PGA-atvinnumaðurinn Jón Halldór Garðarsson upp á golfnámskeið og golfferðir þar sem þátttakendur fá persónulega leiðsögn á framúrskarandi golfvöllum við Miðjarðarhafið.