Embætti ríkissaksóknara hefur tekið ákvörðun í fimm kærumálum vegna ætlaðra kynferðisbrota gegn börnum á leikskólanum á Múlaborg. Í þremur málum felldi ríkissaksóknari ákvörðun lögreglu eða héraðssaksóknara úr gildi og fór fram á frekari rannsókn. Eftir er að taka ákvörðun í einu máli. Þetta kemur fram í svari ríkissaksóknara við fyrirspurn fréttastofu. Starfsmaður á leikskólanum Múlaborg hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni á leikskólanum. Hann var grunaður um brot gegn minnst tíu börnum. Þrjú mál rötuðu alla leið á borð héraðssaksóknara, sem ákvað að gefa aðeins út ákæru í einu þeirra þar sem hin þóttu ekki líkleg til sakfellis. Niðurfelling á rannsókn eða ákæru í málum sex barna voru kærð til ríkissaksóknara. Í svari ríkissaksóknara segir að embættinu hafi borist alls sex kærur vegna ætlaðra brota gegn leikskólabörnum á Múlaborg. Þar af hafi verið tekin afstaða til kæru í fimm málum. Af kærðum ákvörðunum lögreglustjóra um að hætta rannsókn hafi tvær ákvarðanir verið staðfestar. Ein ákvörðun hafi verið felld úr gildi og mælt fyrir um frekari rannsókn. Ákvarðanir héraðssaksóknara um að fella niður mál, sem kærðar voru til ríkissaksóknara, voru báðar felldar úr ildi og mælt fyrir um frekari rannsókn.