Vestfirðir: lítið ferðaveður

Það er lítið ferðaveður á Vestfjörðum í dag. Hvasst á helstu fjallvegum, Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum, Dynjandisheiði og Kletthálsi, vindur er 16 – 18 metrar á sekúndu og eru þær allar ófærar nema Klettháls. Beðið er með mokstur. Opið er um Ísafjarðardjúp. Fjallvegir á sunnanverðum Vestfjörðum eru færir en á óvissustigi og geta lokast með skömmum fyrirvara. […]