Strákarnir taka yfir Magdeburg á HM í janúar

Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, hefur staðfest keppnisstaði hjá sex þátttökuþjóðum á HM karla í handbolta í janúar, Ísland er meðal þeirra liða sem hafa fengið úthlutaðan keppnisstað. Ísland hefur nú þegar tryggt sér þátttökurétt á heimsmeistaramótinu með góðum árangri á EM í janúar síðastliðnum. Dregið verður í riðla 10. júní en Ísland verður þar í efsta styrkleikaflokki. Þrír íslenskir landsliðsmenn munu fá að spila á kunnuglegum stað því Ísland mun spila í H-riðli í Magdeburg. Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Elvar Örn Jónsson spila allir með félagsliði borgarinnar. Fleiri lið eru komin með ákveðinn keppnisstað á mótinu. Danir og Svíar spila í Kiel í sitthvorum riðlinum, Danir í G-riðli og Svíar í E. Þjóðverjar spila á heimavelli í Munchen, í A-riðli, eins og Króatar í C-riðli. Portúgal mun sömuleiðis spila í Magdeburg eins og Ísland en í öðrum riðli, F. Þá er búið að úthluta tveimur leikstöðum til viðbótar. Sigurvegarinn úr umspili Frakka og Tékka spilar í D-riðli í Stuttgart og annaðhvort Ítalía eða Sviss mun spila þar sömuleiðis í B-riðli. Út frá þessari úthlutun er svo hægt að sjá fyrir framhaldið á mótinu takist Íslandi að fara áfram í milliriðil, sem verður að teljast líklegt. Þá mun Ísland spila milliriðilinn í Hannover ásamt liðum úr G-riðli, riðli Dana. Allur útsláttarhluti mótsins mun svo fara fram í Lanxess Arena í Köln.