Iceguys-ævintýrið endar sem kvikmynd

„Það á að loka sögunni endanlega með bíómynd,“ segir Friðrik Dór í Morgunútvarpinu á Rás 2. Friðrik Dór fór um víðan völl og sagði meðal annars frá því að hann væri að vinna í eigin tónlist fyrir plötu sem er væntanleg á næsta ári. Hann sagði líka frá því að það stæði til að taka upp kvikmynd um drengjahljómsveitina Iceguys. Á síðustu árum hafa komið út þrjár þáttaraðir sem sýndar voru í Sjónvarpi Símans. „Við byrjum bara í maí að taka hana upp. Alls konar ævintýri þarna sem við ráðumst í. Ég er búinn að lesa þetta yfir og þetta ætti að gera orðið helvíti skemmtilegt,“ sagði Friðrik Dór. Hlustaðu á viðtalið við Friðrik Dór í spilaranum hér fyrir ofan.