Hamingjuganga í miðborginni

Farið verður í hamingjugöngu í miðborg Reykjavíkur í dag þar sem bæði hamingjunni og krafti trjánna verður fagnað. Er það í tilefni af alþjóðlega hamingjudeginum sem er í dag og alþjóðlegum degi skóga sem er á morgun.