Mikil endurnýjun er á framboðslista Framsóknarflokksins í Hveragerði frá kosningunum fyrir fjórum árum. Listinn var samþykktur á félagsfundi í gærkvöld. María Rut Ólafsdóttir, rekstrarfræðingur og viðskiptaþróunarstjóri, er oddviti listans og Einar Alexander Haraldsson lögregluvarðstjóri skipar annað sætið. Framsóknarflokkurinn fékk tvo bæjarfulltrúa í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Hann hefur verið í meirihlutasamstarfi við Okkar Hveragerði. Hvorugur bæjarfulltrúanna gefur kost á sér til endurkjörs en Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, formaður bæjarráðs, skipar heiðurssæti listans.