Írska lögreglan leitar manns í tengslum við hvarfið á Jóni Þresti Jónssyni, sem hvarf sporlaust í Dyflinni 2019. Þetta hefur írski miðillinn Crimeworld eftir heimildum sínum. Í frétt Crimeworld segir að maðurinn sé búsettur í Bretlandi og hafi setið í fangelsi vegna dóms fyrir heimilisofbeldi. Greint var frá því í Hvar er Jón? – hlaðvarpsþáttaröð RÚV og RTÉ vorið 2024 – að nafngreindur maður hafi verið tengdur við hvarf Jóns Þrastar. Það mun vera sami maður og fjallað er um í grein Crimeworld. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur maðurinn hlotið dóm fyrir heimilisofbeldi á Íslandi, en þó ekki setið í fangelsi hér á landi. Hann hefur einnig hlotið dóma fyrir ýmis önnur brot á Spáni og í Englandi, meðal annars fyrir smygl á fíkniefnum, vopnað rán og ýmis ofbeldisbrot. Heimildamaður Crimeworld segir að maðurinn hafi ekki stöðu grunaðs manns í hvarfi Jóns Þrastar, enda sé málið ekki skilgreint sem manndrápsmál því engin óyggjandi sönnunargögn liggi fyrir um að hann hafi verið myrtur. Írska lögreglan leitar manns í tengslum við hvarf Jóns Þrastar Jónssonar í Dyflinni 2019. Maðurinn er búsettur í Bretlandi en hefur hlotið dóm á Íslandi fyrir heimilisofbeldi.