Lögreglustöðin á Akureyri.RÚV / Kristófer Óli Birkisson Karlmaður var handtekinn á Akureyri í gærkvöldi fyrir að hóta öðrum manni með heygaffli. Þetta staðfestir varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í samtali við fréttastofu. Andri Freyr Sveinsson varðstjóri segir að manninum hafi verið sleppt að lokinni skýrslutöku og að málið sé í hefðbundnu rannsóknarferli.