Góð á­minning um sjálf­sögð réttindi

Réttindi launafólks féllu ekki af himni ofan. Þau eru afrakstur langrar og oft á tíðum harðrar baráttu til að vinna gegn valdaójafnvægi milli starfsfólks og stjórnenda. Ef ekki væri fyrir kjarasamnings- og lögbundin réttindi þá myndu atvinnurekendur ráða einir yfir lífsviðurværi og starfsaðstæðum launafólks.