Finnar eru hamingjusamasta þjóð í heimi og Íslendingar þar á eftir, samkvæmt alþjóðlegu hamingjuskýrslunni. Ville Cantell, sendiherra Finnlands á Íslandi segir samfélagsgerð norrænu þjóðanna veita íbúum mesta vellíðan og öryggi. Cantell segir margt sameiginlegt með þjóðunum í fyrsta og öðru sæti, eins og kynjajafnrétti, velferð og vellíðan, Finnar hafi sánu og Íslendingar heita potta þar sem fólk njóti þess að slaka á og skilja áhyggjurnar við sig, sem og tengslin við náttúruna. Sjálfur sé hann hamingjusamur með að vera sendiherra hamingjunnar í næst-hamingjusamasta landi í heimi.