„Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“
Einn liggur þungt haldinn á spítala eftir að sprenging varð í húsnæði Fóðurblöndunnar í Korngörðum upp úr klukkan sjö í morgun. Sjónarvottur segir að sér sé illa brugðið eftir atvikið. Ringulreiðin og öskrin sem fylgdu hafi verið verulega óþægileg.