Fimm ómstríð og angurvær á föstudegi

Beabadoobee ft The Marías – All I Did Was Dream Of You Ensk-filippseyska tónlistarkonan og krúttið Beabadoobee sendi frá sér laumuna All I Did Was Dream of You á síðustu helgi. Lagið hittir heldur betur í mark hjá indie-krökkum. Í því fær hún sér til aðstoðar draumapoppsveitina The Marías frá Los Angeles. Arlo Parks – Get Go Það er farið að styttast í nýju plötuna frá Arlo Parks, Ambiguous Desire og hún heldur áfram að senda frá sér lög til að kynda mannskapinn. Það nýjasta, sem heitir Get Go, fer vel af stað með nostalgísku nýju klúbbasándi sem er góð andstæða við angurværan og dapran tón Arlo Parks. YĪN YĪN – In Search Of Yang Hollenska sveitin Yin Yin hefur líklega raðað í sig aðeins of mörgum skrítnum smákökum í gegnum tíðina og er að velta því fyrir sér þessa dagana. Í nýja laginu sínu reynir sveitin að finna Yang og jafnvægi í laginu In Search of Yang sem er á nýjustu plötu þeirra, Yatta! sem kom út í janúar. Altın Gün – Neredesin Sen Og áfram höldum við í reykfylltum hljómsveitarýmum í Hollandi en færum okkur frá Maastricht til Amsterdam. Altin Gun eru góðkunningjar Fimmunnar og hafa oft boðið upp á sækadelíudiskó á þessum vettvangi. Á nýju plötunni, Garip, einbeita þeir sér að tyrkneska tónlistararfinum og gera einungis ábreiður af þjóðlagahetjunni Neşet Ertaş. Death Cab for Cutie – Riptides Það kemur líklega fáum á óvart að nýja lagið frá Death Cab For Cutie fjalli um áföll og eftirsjá en það er hægt að vinna með það. Lagið Riptides kom út núna í vikunni. Það er á væntanlegri plötu Bens Gibbard og félaga I Built You a Tower sem er væntanleg í byrjun júni. Fimman lagalisti